Varalið franska liðsins Nice stillti stórfurðulega upp til að verjast aukaspyrnu í leik gegn Grenoble um helgina.
Varnartaktíkin virkar þannig að fimm stórir leikmenn koma sér fyrir á marklínunni, fimm menn verja svæði inni í teig og markvörðurinn stendur tilbúinn til átaka rétt fyrir utan markteiginn.
Varnartaktíkin virkar þannig að fimm stórir leikmenn koma sér fyrir á marklínunni, fimm menn verja svæði inni í teig og markvörðurinn stendur tilbúinn til átaka rétt fyrir utan markteiginn.
Taktíkin gekk upp eins og má sjá á myndbandinu hér fyrir neðan en það væri virkilega gaman að sjá hvernig þessari vörn gengi á móti skoti frá Cristiano Ronaldo eða öðrum aukaspyrnusérfræðingi.
Athugasemdir