Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fös 30. janúar 2015 08:00
Daníel Freyr Jónsson
Heimild: Daily Mail 
Aston Villa og Newcastle berjast um leikmann MK Dons
Dele Alli.
Dele Alli.
Mynd: Getty Images
Aston Villa hefur blandað sér í baráttu við Newcastle um undirskrift hins 18 ára Dele Alli, miðjumann MK Dons.

Alli hefur vakið mikla athygli fyrir frammistöðu sína á tímabilinu og er fastlega búist við að hann verði seldur frá MK Dons áður en félagaskiptaglugginn lokast á mánudaginn.

Newcastle hefur mikinn áhuga á leikmanninum og hefur verið í viðræðum um að greiða 5 milljónir punda fyrir hann. Samkvæmt enskum fjölmiðlum hefur Newcastle þegar komist að samkomulagi um kaupin.

Villa hefur nú boðið í leikmanninn og gæti það sett félagaskiptin til Newcastle í uppnám.

Hvort sem það verði Villa eða Newcastle sem kaupir Alli, þá er búist við að hann muni klára leiktíðina með MK Dons í D-deildinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner