Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 30. janúar 2015 09:00
Daníel Freyr Jónsson
Heimild: The Guardian 
Danny Ings til Liverpool?
Danny Ings.
Danny Ings.
Mynd: Getty Images
Liverpool hefur áhuga á að kaupa framherjann Danny Ings frá Burnley og gæti gengið frá kaupum fyrir lok félagaskiptagluggans.

The Guardian greinir frá þessu og segir að Ings myndi klára tímabilið hjá Burnley sem lánsmaður.

Tottenham og Real Sociedad hafa verið orðuð við Ings undanfarið og er verðmiðinn á honum sagður vera í kringum 7 milljónir punda.

Ings hefur farið fyrir liði Burnley á tímabilinu og skorað sjö mörk í 19 leikjum á tímabilinu. Fylgir hann því eftir góðu tímabili í Championship-deildinni í fyrra þar sem hann skoraði 20 mörk.
Athugasemdir
banner
banner
banner