Athletic Bilbao og Espanyol munu mætast í undanúrslitum spænska konungsbikarsins eftir lokaleikina í fjórðungsúrslitum í kvöld.
Espanyol var í fínni stöðu fyrir útileik sinn gegn Sevilla, en Katalóníuliðið vann fyrri leikinn 3-1. Eina mark leiksins skoraði Diogo Figueiras fyrir Sevilla, en það kom ekki að sök fyrir Espanyol.
Þá vann Athletic Bilbao 1-0 sigur á Malaga þar sem fyrri leikurinn endaði markalaus. Artiz Aduriz skoraði þar eina markið skömmu eftir leikhlé.

Espanyol og Bilbao mætast því undanúrslitunum sem fram fara í febrúar.
Sigurvegarinn úr þeirri rimmu mun svo mæta annaðhvort Villarreal eða Barcelona í úrslitum.
Sevilla 1 - 0 Espanyol
1-0 Diogo Figueiras ('88)
Athletic Bilbao 1 - 0 Malaga
1-0 Aritz Aduriz ('48)
Athugasemdir