Ótrúlegt atvik átti sér stað í leik í níundu efstu deild á Englandi á dögunum.
Carl Haslam framherji AFC Mansfield Town fór þá illa að ráði sínu.
Carl Haslam framherji AFC Mansfield Town fór þá illa að ráði sínu.
Haslam gerði allt rétt þegar hann komst framhjá varnarmanni og markmanni andstæðinganna en hann skaut síðan framhjá fyrir galopnu marki af innan við tveggja metra færi.
Vallaraðstæður voru ekki góðar en Haslam getur þó lítið notað það sem afsökun.
Sjáið þetta ótrúlega myndband hér að neðan.
Athugasemdir