Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 31. janúar 2015 21:02
Arnar Geir Halldórsson
Darren Fletcher fer ekki til West Ham
Fletcher er þriðji fyrirliði Man Utd
Fletcher er þriðji fyrirliði Man Utd
Mynd: Getty Images
Darren Fletcher er ekki á leið til West Ham en þetta staðfestu bæði Sam Allardyce og Louis van Gaal í dag.

Man Utd var búið að gefa Fletcher grænt ljós á að yfirgefa félagið en upp úr slitnaði í samningaviðræðunum í morgun.

West Ham vildi fá Fletcher á láni en það hugnast ekki forráðamönnum Man Utd og því útlit fyrir að Fletcher verði áfram hjá félaginu en hann hefur leikið allan sinn feril á Old Trafford.

Það styttist óðum í að félagsskiptaglugginn loki og spurning hvort eitthvað annað lið stökkvi ekki til og reyni að klófesta þennan reynslumikla miðjumann.


Athugasemdir
banner
banner