sun 01. febrúar 2015 16:21
Brynjar Ingi Erluson
Icardi gaf stuðningsmönnum treyjuna - Hentu henni aftur í hann
Mynd: Getty Images
Mauro Icardi, framherji Internazionale á Ítalíu og samherji hans, Fredy Guarin, lentu í heiftarlegu rifrildi við stuðningsmenn félagsins eftir 3-1 tap gegn Sassuolo í ítölsku deildinni í dag.

Icardi skoraði eina mark Inter í leiknum en það var hins vegar ekki nóg. Liðið er í tólfta sæti deildarinnar og gengur lítið upp hjá lærisveinum Roberto Mancini þessa stundina.

Hann hefur verið orðaður við Chelsea undanfarna daga en hann ætlaði að þakka stuðningsmönnum liðsins fyrir komuna með því að gefa þeim treyjuna en þeir vönduðu honum ekki kveðjurnar.

Hann og Fredy Guarin gáfu stuðningsmönnum treyjur sínar en þeir hentu henni í jörðina og hófst þá heiftarlegt rifrildi.

Andrea Ranocchia, fyrirliði Inter, þurfti að stíga á milli þeirra en hægt er að sjá myndband af þessu hér fyrir neðan.


Athugasemdir
banner
banner
banner