sun 01. febrúar 2015 16:54
Brynjar Ingi Erluson
Wenger: Jákvætt að halda hreinu
Mynd: Getty Images
Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal á Englandi, var auðvitað í skýjunum með 5-0 sigur liðsins á Aston Villa í dag.

Olivier Giroud, Santi Cazorla, Mesut Özil, Theo Walcott og Hector Bellerin sáu um að skila liðinu sigri í dag en Özil var magnaður og lagði upp eitt mark auk þess sem hann skoraði.

,,Þetta var jákvætt því við héldum hreinu. Við vitum að við getum skorað mörk en við þurftum að vera þolinmóðir því Villa reyndi að stöðva okkur í að keyra fram," sagði Wenger.

,,Það er ekki hægt að gagnrýna frammistöðuna hjá neinum. Özil gerði vel og það tekur sinn tíma að ná skerpunni aftur."

,,Þó svo við vorum 4-0 eða 5-0 yfir þá voru menn samt í því að verjast,"
sagði hann að lokum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner