sun 01. febrúar 2015 17:22
Alexander Freyr Tamimi
Segir Remy geta fyllt vel upp í skarð Diego Costa
Loic Remy skoraði í gær.
Loic Remy skoraði í gær.
Mynd: Getty Images
Nemanja Matic, miðjumaður Chelsea, segir að Loic Remy geti vel fyllt upp í skarð Diego Costa í næstu tveimur leikjum í ensku úrvalsdeildinni.

Spænski landsliðsmaðurinn fékk þriggja leikja bann fyrir að traðka á Emre Can og missti af 1-1 jafntefli Chelsea gegn Manchester City um helgina, en þar skoraði einmitt Remy mark Lundúnaliðsins.

,,Remy stóð sig mjög vel. Hann skoraði mark og gerði nákvæmlega það sem þjálfarinn vildi," sagði Matic við Chelsea TV.

,,Hann gefur okkur meira sjálfstraust fyrir næsta leik. Ég er mjög spenntur fyrir því að sjá hann í næsta leik."

,,Núna mun fólk sjá að hann er mjög góður leikmaður og hann verður mjög mikilvægur fyrir okkur."

Athugasemdir
banner
banner