Varnarmaðurinn Mamadou Sakho, leikmaður Liverpool, mun snúa aftur til æfinga um helgina eftir fjarrveru vegna nárameiðsla.
Þessi franski landsliðsmaður missti af 2-0 sigri Liverpool gegn Southampton um síðustu helgi, auk þess sem hann spilaði ekki í leik liðsins gegn Besiktas í gær.
,,Góðar fréttir úr prófunum sem ég fór í í vikunni, mat læknanna er að ég get byrjað að æfa aftur á laugardag," skrifaði Sakho á Twitter síðu sína í gær.
Liverpool hefur verið á góðri siglingu í deildinni undanfarið og mætir Manchester City á sunnudag.
Athugasemdir