fös 27. febrúar 2015 15:39
Magnús Már Einarsson
New York vonast ennþá til að landa Xavi
Mynd: Getty Images
New York City vonast til að fá spænska miðjumanninn Xavi í sínar raðir frá Barcelona á næsta ári.

New York reyndi að fá Xavi síðastliðið sumar en án árangurs þar sem hann skrifaði á endanum undir hjá Barcelona til ársins 2016.

Hins vegar vonast forráðamenn New York til að hinn 34 ára gamli Xavi sé tilbúinn að koma til félagsins á næsta ári.

,,Við lokum ekki dyrunum á Xavi. Við höfum áður reynt að krækja í hann og á næsta ári þurfum við nýja gæða leikmenn," sagði Claudio Reyna yfirmaður fótboltamála hjá New York.

New York er stórhuga en liðið er einnig með Frank Lampard og David Villa á sínum snærum.
Athugasemdir
banner
banner
banner