Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   sun 01. mars 2015 21:58
Alexander Freyr Tamimi
Ítalía: Torino vann Napoli
Kamil Glik fagnar hér sigurmarki sínu.
Kamil Glik fagnar hér sigurmarki sínu.
Mynd: Getty Images
Torino 1 - 0 Napoli
1-0 Kamil Glik ('68 )

Baráttan um Meistaradeildarsæti á Ítalíu er nú orðin gríðarlega spennandi eftir að Napoli tapaði óvænt 1-0 gegn Torino í Seríu A í kvöld.

Eina mark leiksins skoraði Kamil Glik fyrir heimamenn á 68. mínútu og nú er baráttan um 2. og 3. sætið mjög spennandi, en þau sæti gefa þátttökurétt í Meistaradeildinni.

Roma, sem mætir toppliði Juventus á morgun, er í 2. sætinu með 48 stig. Napoli er svo sæti neðar með 45 stig en Lazio og Fiorentina koma í humátt á eftir með 43 og 42 stig.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner