Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 03. mars 2015 17:15
Magnús Már Einarsson
Sturridge að komast í sitt besta form
Daniel Sturridge stígur dans.
Daniel Sturridge stígur dans.
Mynd: Getty Images
Brendan Rodgers, stjóri Liverpool, telur að Daniel Sturridge muni komast í sitt besta form á næstu dögum.

Sturridge missti af fimm mánuðum fyrr á tímabilinu vegna meiðsla en hann hefur verið að koma hægt og rólega inn í lið Liverpool undanfarnar vikur.

Sturridge kom inn á sem varamaður gegn Manchester City um helgina og Rodgers bíður spenntur eftir að sjá hann meira í nýju leikkerfi Liverpool sem hefur skilað góðum árangri á þessu ári.

,,Daniel er ekki í sínu besta formi ennþá og þetta er erfitt fyrir hann af því að það eru engir æfingaleikir á dagskrá til að komast í leikform," sagði Rodgers.

,,Hann er spenntur fyrir nýja kerfinu. Ef við setjum Daniel Sturridge inn í þetta kerfi þá mun hann blómstra á ný. Í lok vikunnar verður Daniel á fínu skriði og þá getur hann farið að æfa á fullu og spila alla leiki."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner