Leikið var á þriðjudag og miðvikudag í enska boltanum. Það er alltaf hressandi að fá úrvalsdeildarleiki í miðri viku og það var hellingur af áhugaverðum leikjum.
Hér að neðan má sjá hverjir skipa úrvalslið umferðarinnar hjá vefsíðunni Goal.com en þar má finna íslenska landsliðsmanninn Gylfa Sigurðsson sem skoraði í 3-2 tapi Swansea gegn Tottenham.
Hér að neðan má sjá hverjir skipa úrvalslið umferðarinnar hjá vefsíðunni Goal.com en þar má finna íslenska landsliðsmanninn Gylfa Sigurðsson sem skoraði í 3-2 tapi Swansea gegn Tottenham.
Öll efstu lið deildarinnar fögnuðu sigrum í umferðinni.
THIBAUT COURTOIS | West Ham 0-1 Chelsea | Átti nokkrar mjög góðar vörslur sem gerðu að verkum að Chelsea vann iðnaðarsigur gegn West Ham.
EMRE CAN | Liverpool 2-0 Burnley | Heldur áfram að blómstra í vörninni og er kominn í uppáhald hjá stuðningsmönnum Liverpool.
MARTIN DEMICHELIS | Manchester City 2-0 Leicester City | Vincent Kompany var hent á bekkinn og Demichelis lét ljós sitt skína.
GYLFI ÞÓR SIGURÐSSON | Tottenham 3-2 Swansea City | Átti frábæran leik þó hans lið hafi tapað. Skoraði flott mark og var óheppinn að skora ekki annað.
ALEXIS SANCHEZ | QPR 1-2 Arsenal | Varð betri eftir því sem á leikinn leið og sigraðist á markaþurrðinni.
Athugasemdir