Fyrst við höfum birt úrvalslið umferðarinnar í ensku úrvalsdeildarinnar þá er ekki úr vegi að birta floppliðið. Úrvalslið leikmanna sem voru alls ekki að standa undir væntingum í leikjunum í miðri viku. Goal.com tók saman.
BEN FOSTER | Aston Villa 2-1 West Brom | Heppinn að fá ekki á sig klaufalegt mark í upphafi leiks þegar hann missti boltann í gegnum klof sitt. Í blálok leiksins gaf hann svo víti á klaufalegan hátt og Aston Villa fagnaði sigri.
MARTIN KELLY | Southampton 1-0 Crystal Palace | Tapaði baráttuinni fyrir Sadio Mane sem skoraði sigurmarkið.
GARETH BARRY | Stoke City 2-0 Everton | Tapaði baráttunni fyrir Charlie Adam og var á endanum tekinn af velli.
ANGEL DI MARIA | Newcastle 0-1 Manchester United | Vandræðin halda áfram hjá Argentínumanninum hæfileikaríka sem átti hörmulegan dag.
Athugasemdir