Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 05. mars 2015 15:03
Elvar Geir Magnússon
Jonny Evans: Hrækti ekki á Papiss Cisse
Úr leiknum í gær.
Úr leiknum í gær.
Mynd: Getty Images
„Eftir að ég vaknaði í morgun var það áfall að sjá umfjöllun fjölmiðla um leikinn í gær. Ég vil koma því á hreint að ég hrækti ekki á Papiss Cisse," segir varnarmaðurinn Jonny Evans hjá Manchester United í yfirlýsingu sem hann gaf frá sér áðan.

„Ég tók ekki eftir neinu atviki tengdu hráku og þessi umræða kemur mér gríðarlega á óvart. Það er ekki í mínum persónuleika eða nátturu að hrækja á einn eða neinn. Ég hef aldrei gert það og mun aldrei gera það."

Á myndbandsupptökum virtist sem Evans hefði hrækt á Cisse sem svaraði í sömu mynt.

Enska knattspyrnusambandið skoðar atvikið sem átti sér stað í leik sem Manchester United vann 1-0 gegn Newcastle í gær.
Athugasemdir
banner
banner