Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 06. mars 2015 07:30
Daníel Freyr Jónsson
Heimild: Mirror 
Ignacio Camacho orðaður við Tottenham
Ignacio Camacho.
Ignacio Camacho.
Mynd: Getty Images
Tottenham hefur áhuga á að fá miðjumanninn Ignacio Camacho frá Malaga í sumar og hafa viðræður þegar átt sér stað.

Frá þessu greina spænskir fjölmiðlar, en samkvæmt þeim eru fleiri félög áhugasöm um þennan 24 ára gamla Spánverja.

Camacho hefur spilað manna best í liði Malaga í vetur og komst hann nýlega í spænska landsliðið.

Inter, Atletico Madrid og Napoli reyndu öll að kaupa Camacho síðasta sumar og fór Malaga fram á 25 milljónir evra.
Athugasemdir
banner
banner
banner