„Þeir hafa oft lent í fjárhagserfiðleikum og heilt yfir er þetta mjög illa rekið félag í alla staði. Það hefur verið margt gruggugt þarna í gangi í gegnum tíðina," segir Björn Már Ólafsson, sérfræðingur um ítalska boltann, um stöðu Parma.
Parma er langneðst í A-deildinni og er í tómu tjóni fjárhagslega.
Parma er langneðst í A-deildinni og er í tómu tjóni fjárhagslega.
„Félagið er á leið í gjaldþrot en það verður tekið fyrir í lok mars. Ástandið er svo slæmt núna að félagið á í erfiðleikum með dagleg útgjöld. Þeir hafa ekki efni á að hafa flóðljósin í gangi og geta ekki borgað vörðum til að vinna á leikjunum þeirra."
„Önnur félög í deildinni hafa samþykkt að borga þeim fimm milljónir evra sem á að duga til að dekka útgjöldin út tímabilið hjá þeim."
Björn Már var í viðtali við útvarpsþáttinn Fótbolti.net á X-inu síðasta laugardag en umræðuna má heyra í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir