fös 27. mars 2015 15:30
Magnús Már Einarsson
Mark Hughes gerir nýjan samning við Stoke
Mynd: Getty Images
Mark Hughes, knattspyrnustjóri Stoke, hefur framlengt samning sinn við félagið til ársins 2018.

Hughes tók við Stoke sumarið 2013 og hefur gert góða hluti síðan þá.

,,Það eru spennandi tímar framundan hjá Stoke. Allir sjá að við getum náð ennþá lengra og við viljum sjá hversu langt við getum farið með félagið," sagði Hughes.

,,Ég hef trú á því að við getum gert ennþá betur á næsta tímabili með smá kaupum. Sjáum hversu langt við náum."

Stoke endaði í níunda sæti í ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili en liðið er sem stendur í tíunda sætinu.
Athugasemdir
banner
banner
banner