Tveir leikir fóru fram í A-deild Lengjubikarsins klukkan 21:00 í kvöld og er þeim nú báðum lokið.
HK vann sannfærandi 3-0 sigur gegn Þrótti. Fyrsta mark leiksins kom frá Guðmundi Atla Steinþórssyni eftir rúman hálftíma og var staðan 1-0 í leikhléi.
Í síðari hálfleik bætti Guðmundur Atli svo við öðru marki áður en Árni Arnarsson innsiglaði sigur HK-inga. Þá fékk Alexander Veigar Þórarinsson í liði Þróttar svo að líta rautt spjald áður en leik lauk.
Grindavík rétt nældi sér í stig gegn Fjarðabyggð með því að jafna metin í 1-1 í uppbótartíma. Andri Þór Magnússon hafði komið Fjarðabyggð yfir en það var svo Jósef Kristinn Jósefsson sem jafnaði metin fyrir Grindavíkinga.

HK er nú í 3. sæti Riðils 1 í A-deildinni með 12 stig eftir sex leiki á meðan Þróttur er í 5. sætinu með 7 stig eftir jafn marga leiki.
Grindavík og Fjarðabyggð eru bæði með 7 stig í Riðli 3 í sömu deild.
Athugasemdir