,,Þetta voru frábær úrslit. Þetta var nokkuð þægilegt þó að þeir hafi pressað okkur aðeins í síðari hálfleik," sagði Jóhann Berg Guðmundsson eftir 3-0 sigur Íslands á Kasakstan í dag.
Fyrir leik var talað um að um skyldusigur væri að ræða í riðlinum og leikmenn íslenska liðsins voru óhræddir að taka undir það.
Fyrir leik var talað um að um skyldusigur væri að ræða í riðlinum og leikmenn íslenska liðsins voru óhræddir að taka undir það.
,,Við erum óhræddir með að setja smá pressu á okkur. Það gerir þetta aðeins skemmtilegra og við verðum bara að standa undir því."
,,Þjóðin er búin að tala um að þetta sé skyldusigur og við sögðum það sjálfir. Það var ekkert vanmat í dag og við vorum nokkuð góðir. Það þarf að taka þessa sigra til að komast áfram í þessu móti."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir