Hjörtur Hjartarson verður sérfræðingur í Pepsi-mörkunum á Stöð 2 Sport í sumar.
Hörður Magnússon, þáttastjórnandi Pepsi-markanna, staðfesti þetta á Twitter í dag.
,,Já, Pepsimörkin fá markakónginn Hjört Hjartarson í settið í sumar.Mikill fengur, jafnvel hvalreki.Meira staðfest síðar #Pepsimörkin15," sagði Hörður.

Hjörtur var á dögunum ráðinn þjálfari hjá Auganbliki í 4. deildinni en hann mun einnig spila með liðinu í sumar.
Þessi fertugi framherji hefur leikið með ÍA, Skallagrími, Völsungi, Þrótti, Selfoss og Víkingi R. á ferli sínum.
Talsverðar breytingar verða á Pepsi-mörkunum í sumar en ljóst er að Þorvaldur Örlygsson, Bjarnólfur Lárusson og Reynir Leósson hverfa allir af skjánum síðan í fyrra.
Athugasemdir