Fabio Coentrao, bakvörður Real Madrid, virðist vera afar opinn fyrir því að spila fyrir Manchester United.
Portúgalinn er reglulega orðaður við enska stórliðið og spænskir fjölmiðlar halda því fram að United ætli að gera aðra tilraun til að fá hann í sínar raðir í sumar.
Portúgalinn er reglulega orðaður við enska stórliðið og spænskir fjölmiðlar halda því fram að United ætli að gera aðra tilraun til að fá hann í sínar raðir í sumar.
,,Ég hef nú þegar lýst yfir áhuga mínum á að spila hjá Manchester United," sagði Coentrao við portúgalska dagblaðið O Jogo.
,,Þetta er eitt besta félag heims og ég ber mikla virðingu fyrir því. Það yrði heiður að spila þar."
Coentrao hefur mátt sætta sig við talsverða bekkjarsetu hjá Real Madrid undanfarin ár, en Marcelo á nokkuð fast sæti í vinstri bakverðinum.
Athugasemdir