Kvennalandslið Íslands og Hollands mætast í Kórnum klukkan 14:00 en um er að ræða vináttulandsleik. Ókeypis aðgangur er á leikinn.
Þetta verður í áttunda skiptið sem þjóðirnar eigast við hjá A landsliði kvenna en Ísland hefur fimm sinnum farið með sigur af hólmi í viðureignunum hingað til, einu sinni hefur orðið jafntefli og einu sinni hefur Holland haft betur.
Freyr Alexandersson landsliðsþjálfari var í viðtali í útvarpsþætti Fótbolta.net á X-inu FM 97,7 áðan en í spilaranum hér að ofan má hlusta á það.
Athugasemdir