Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 19. apríl 2015 12:00
Arnar Geir Halldórsson
Myndband: Magnað mark Memphis Depay
Öflugur
Öflugur
Mynd: Getty Images
PSV Eindhoven tryggði sér hollenska meistaratitilinn í gær þegar liðið lagði Heerenveen 4-1.

Hollenski kantmaðurinn Memphis Depay hefur verið frábær í liði PSV á leiktíðinni en hann er markahæsti leikmaður deildarinnar með 20 mörk.

Hann var á skotskónum í gær en hann skoraði annað mark liðsins með stórkostlegu skoti beint úr aukaspyrnu.

Depay er af mörgum talinn einn allra efnilegasti leikmaður heims um þessar mundir en þessi 21 árs leikmaður hefur verið orðaður við stærstu lið enska boltans í allan vetur.

Myndband af þessari mögnuðu aukaspyrnu má sjá hér fyrir neðan.


Athugasemdir
banner
banner