Bayern Munchen 2-1 USV Jena
1-0 Melanie Behringer ('17)
2-0 Dagný Brynjarsdóttir ('23)
2-1 Julia Arnold ('81)
1-0 Melanie Behringer ('17)
2-0 Dagný Brynjarsdóttir ('23)
2-1 Julia Arnold ('81)
Dagný Brynjarsdóttir var á skotskónum fyrir Bayern Munchen í dag þegar liðið lagði USV Jena í Bundesligunni.
Dagný spilaði allan leikinn og skoraði annað mark liðsins á 23.mínútu.
Þetta var þriðja mark Dagnýjar á leiktíðinni en hún hefur verið í lykilhlutverki hjá liðinu síðan hún gekk í raðir þess á þessu ári.
Sigurinn var gífurlega mikilvægur fyrir Bayern sem er nú stigi á eftir toppliði Wolfsburg þegar tvær umferðir eru eftir af deildarkeppninni.
Athugasemdir