Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 20. apríl 2015 20:14
Hafliði Breiðfjörð
Heimild: Liverpool Echo 
Suarez: Reyni að sjá alla Liverpool leiki í sjónvarpi
Suarez horfir enn á Liverpool þó hann skori fyrir Barcelona í dag.
Suarez horfir enn á Liverpool þó hann skori fyrir Barcelona í dag.
Mynd: EPA
,,Ég reyni að horfa á alla leiki Liverpool í sjónvarpi," sagði Luis Suarez á fréttamannafundi í dag.

Suarez var þangað mættur til að ræða leik sinna manna í Barcelona gegn PSG í Meistaradeild Evrópu annað kvöld þegar talið barst að Liverpool.

,,Mér finnst þeir vera með mjög góða leikmenn og mér finnst gaman að horfa á þá."

,,Það er óheppilegt að Steven (Gerrard) er að hætta að spila því mér finnst hann ótrúlegur leikmaður. En þegar ég var hjá Liverpool vissu þeir alveg að draumur minn var að spila fyrir Barcelona."

Athugasemdir
banner
banner
banner