Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 26. apríl 2015 21:21
Brynjar Ingi Erluson
Spánn: Chicharito með tvö í sigri Real
Javier Hernandez skoraði tvö fyrir Real Madrid
Javier Hernandez skoraði tvö fyrir Real Madrid
Mynd: Getty Images
Þrír leikir fóru fram í spænska boltanum í kvöld en Real Madrid fagnaði þægilegum sigri á Celta.

Sevilla lagði Rayo Vallecano með tveimur mörkum gegn engu. Vicente Iborra og Daniel Carrico gerðu mörk Sevilla.

Almeria lagði þá Eibar með sömu markatölu en Thievy Bifouma og Verza skoruðu mörk heimamanna.

Celta tapaði fyrir Real Madrid 2-4. Heimamenn byrjuðu vel og kom Nolito þeim yfir áður en Toni Kroos jafnaði metin. Javier Hernandez er á eldi þessa dagana og kom hann Real yfir áður en Santi Mina jafnaði.

James Rodriguez og Hernandez sáu svo til þess að Madrídingar kláruðu dæmi. Lokatölur því 2-4 og Real Madrid heldur því öðru sæti deildarinnar með 79 stig, tveimur stigum á eftir Barcelona.

Úrslit og markaskorarar:

Sevilla 2 - 0 Rayo Vallecano
1-0 Vicente Iborra ('16 )
2-0 Daniel Carrico ('43 )

Almeria 2 - 0 Eibar
1-0 Thievy Bifouma ('8 )
2-0 Verza ('68 , víti)

Celta 2 - 4 Real Madrid
1-0 Nolito ('9 )
1-1 Toni Kroos ('16 )
1-2 Javier Hernandez ('24 )
2-2 Santi Mina ('28 )
2-3 James Rodriguez ('43 )
2-4 Javier Hernandez ('69 )
Athugasemdir
banner
banner
banner