Afturelding 1 - 0 Sindri
1-0 Gunnar Wigelund ('79)
1-0 Gunnar Wigelund ('79)
Afturelding mætti Sindra í úrslitaleik B-deildar Lengjubikarsins en leikið var í Kórnum í gær.
Gunnar Wigelund skoraði sigurmark leiksins á 79. mínútu en leikurinn var jafn og lítið um færi.
Á 89. mínútu fékk Sindri vítaspyrnu og hefði getað jafnað metin en Sigurbjartur Sigurjónsson í marki Aftureldingar varði spyrnuna og Mosfellsbæjarliðið fagnaði sigri.
Athugasemdir