Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   þri 21. september 2004 07:28
Magnús Már Einarsson
Viðtal við strákana í 70 mínútum um fótbolta
Mynd: Magnús Már Einarsson
Flestir kannast við strákana í 70.mínútum á Popp Tíví en þeir Sverrir Þór Sverrisson (Sveppi), Auðunn Blöndal (Auddi), Pétur Jóhann Sigfússon og Hugi Halldórsson hafa skemmt mörgum með uppátækjum sínum. Við hér á Fótbolti.net ákváðum að hitta strákana að máli og spjalla aðeins við þá um fótbolta en eins og einhverjir vita þá hafa þeir farið á æfingu hjá Chelsea en Sveppi er góðvinur Eiðs Smára Guðjhonsen landsliðsfyrirliða okkar Íslendinga. Kíkjum á þetta stórskemmtilega viðtal.



“Sveppí, you are born to be striker”
Hvernig var fótboltaferilll ykkar?
Pétur: Hann hefur ekki ennþá byrjað sá ferill og því er skemmst að minnast og stutt að segja frá.

Hugi: Hann byrjaði í Víking svo fór hann í FH, því næst í Tindastól og svo er hann kominn aftur núna í FH. Ég var alltaf betri en Auddi, skoraði meira af mörkum, er reyndar árinu yngri en samt betri en Auddi.

Auddi: Minn var glæsilegur annað en hjá Huga því að ef að ég man rétt þá var Hugi alltaf á bekknum þegar að ég var í boltanum. Fótboltaferill minn var glæsilegur ég var á toppnum átta ára gamall í Bandaríkjunum og var þar langbestur. En hann lá niður á við eftir það. Ég var hinsvegar valinn efnilegasti leikmaður Tindastóls þegar að ég var í öðrum flokki og er mjög stoltur af því. Svo lék ég með Skallagrími og skoraði þar einhver sjö mörk, fjögur í fyrstu deild. Fótboltaferillinn minn hefði mátt vera glæsilegri en ég er mjög sáttur við hann.

Sveppi: Ég byrjaði að æfa fótbolta með ÍR og gekk mjög vel. Ég var oft reyndar á bekknum í A-liðinu, fékk oft að spila en svo hætti ég kringum fimmtán ára. Ég byrjaði aftur þegar að ég var átján ára í einhverskonar djóki og þá var útlenskur þjálfari að þjálfa mig sem að hét Enes og hann var einhverntímann að tala við allt liðið, taka hvern og einn fyrir og hann sagði við mig “Sveppí, you are born to be striker” og það eru orð sem að ég á seint eftir að gleyma.


Hvaða stöðu spiluðuð þið í boltanum?
Hugi: Ég var kantmaður og ég var líka framherji.

Sveppi: Ég var “senter” og “goalkeeper”

Auddi: Ég var “pjúra senter” vinstri kanturinn til að byrja með reyndar.


Með hvaða liði haldið þið í enska boltanum?
Pétur: Það myndi vera Manchester United það er eina liðið sem að ég kannast við.

Hugi: Manchester

Sveppi: Chelsea

Auddi: Manchester United og Hull City í neðri deildum.

Hugi: Scunthorpe United hjá mér líka.


"Já en næst verðum við á kvikindinu"
Nú hlupuð þið inn á völlinn og trufluðu leik KR og FH í efstu deild kvenna á dögunum við litlar vinsældir hjá KSÍ. Er von á öðru eins atriði frá ykkur?
Hugi: Já á næsta ári.

Auddi: Nei það er ekki í bráð allavega.

Pétur: Nei eða við verðum allavega ekki í brók næst. Við verðum á kvikindinu.


Farið þið oft á völlinn?
Pétur: Jú, maður kíkir á völlinn. Ég fór á Stjörnuleik einhverntímann fyrir fjórum árum. Ekki leiðinlegt það.

Hugi: Var það ekki körfubolti Pétur?

Pétur: Ég veit ekki hvaða bolti það var. Það var gaman á þessum leik samt. Fullt af gellum á vellinum.

Hugi: Já ég er búinn að fara á flesta FH leiki og svo reyni ég að fara á alla útileiki Tindastóls.

Pétur: Hann á líka ekki kærustu og hefur ekkert betra að gera.

Sveppi: Ég er ekki búinn að fara nógu oft á völlinn. Ég er Víkingur eins og staðan er í dag og Pabbi erVíkingur og Ingvar bróðir líka og þeir fara alltaf á völlinn og eru að reyna að draga mig með en ég hef aldrei farið. Mig langar að fara en það verður bara að gerast næsta sumar.

Auddi: Ég hef verið alltof latur á þessu tímabili því að Valur var í fyrstu deild en þeir eru komnir upp og þá fer maður oftar á völlinn á næsta ári. Ég held að ég hafi farið þrisvar eða fjórum sinnum í fyrra.


Hafið þið farið á völlinn erlendis?
Hugi: Já á Valencia – Sevilla.

Sveppi: Já ég er búinn að fara á nokkuð marga leiki erlendis. Meðal annars Arsenal – Chelsea í Meistaradeildinni þar sem að Chelsea sigraði 2-1 og komst áfram, eigum við að ræða það eitthvað frekar? Það var rugl. Svo hef ég farið á Bolton og eitthvað svona rugl.

Auddi: Já ég fór Valencia – Sevilla með Huga og ég fór á AC Milan –Fiorentina á San Siro og svo hef ég farið á Chelsea. Maður hefur farið á nokkra leiki.

Pétur: Nei ég hef ekki farið. Bara á tónleika sem að haldnir voru á fótboltavelli en það er kannski ekki tekið með.


Strætóbílstjórafagn á leiðinni
Sveppi, Nú ert þú góðvinur Eiðs, var hann góður á sínum yngri árum eða varst þú betri?
Við vorum svona svipaðir. Það var ótrúlega stutt á milli. Við vorum svipaðir í vexti og svipaðir leikmenn inni á vellinum en hann var alltaf með aðeins meiri metnað.


Sveppi, nú gerðuð þið nokkur góð fögn þú og Eiður, er eitthvað nýtt á leiðinni?
Já já það eru til mörg góð fögn sem að á eftir að “Presentera” fyrir mannskapnum. Meðal annars “Strætóbílstjórinn”, það hefur aldrei farið í loftið.


Hvaða frægu fótboltamenn hafa þið hitt?
Pétur: Já ég hef hitt Ásgeir Sigurvinsson þekki hann aðeins. Við erum fínir félagar. Svo hef ég hitt Eið Smára aðeins, hann talaði við mig. Svo dreymdi mig hann líka.

Hugi: Mig hefur dreymt Eið líka, mig hefur dreymt fleiri fótboltamenn Cantona og fleiri en ég hef hitt Eið og hann er sá frægasti sem að ég hef hitt.

Sveppi: Ég er búinn að hitta nokkra úr Chelsea, Bolton og Andy Cole, ég hitti hann á Dubai.

Auddi: Það er eins með mig og Sveppa við hittum leikmenn þegar að við fórum á Chelsea æfingu og ég kenndi Melchiot að halda á lofti meðal annars. Svo hef ég hitt Harold Bishop úr Nágrönnum hann spilaði fótbolta í Ástralíu þegar að hann var yngri.


Hver ykkar er bestur í fótbolta?
Auddi: Þeir svara ekki hreinskilið þessir strákar.

Hugi: Höfum það allavega á hreinu að einn okkar er lélegastur

Auddi: Já Pétur er lélegastur.

Pétur: Já ég er verstur en ég veit samt ekki hver er bestur.

Auddi: Við erum svo misjafnir leikmenn.


"Pantaði Pizzu á bekkinn."
Eigið þið skemmtilega sögu af fótboltaferli ykkar?
Auddi: Ég hitti stelpu upp daginn sem að ég var með í bekk og hún var að rifja upp fyrir mér sögu sem að er líklega sú eftirminnilegasta. Þá var ég að keppa á móti Hvöt á Blönduósi og var rekinn út af fyrir að segja dómaranum að “hoppa upp í rassgatið á sér”. Þjálfarinn minn var reiður svo að ég fór að reyna útskýra fyrir honum að brotið hefði verið á mér og dómarinn ekkert dæmt. Þjálfarinn sagði mér að drulla mér í burtu. Ég fór á bakvið rútu af því að það var ekkert brotið á mér og ég fór að berja stein í hnéið á mér svo að það færi að blæða úr hnénu á mér. Þetta gerði ég til þess að þjálfarinn myndi sjá þegar að hann kæmi inn í klefa að ég hefði meitt mig og þetta er dagssatt.

Sveppi: Einu sinni var ég varamaður og var orðinn svo svangur að ég pantaði mér pizzu. Ég át hana á bekknum og kom inn á í seinni hálfleik og skoraði tvö mörk. Það var á litlum velli reyndar en það voru góð mörk.

Hugi: Félagi minn Árni Vigfússon sparkaði eitt sinn í þúfu í Mosfellsbæ og meiddist og var frá út tímabilið. Hann var kallaður “Árni þúfa” eftir þetta en þetta er það helsta sem að ég man eftir að hafi gerst inni á vellinum í augnablikinu.

Pétur:
Ég var einu sinni að spila fótbolta á Seyðisfirði þegar að ég var lítill strákur. Það var gæi þar sem að var alltaf að berja alla í bænum og hann tók hjólið mitt þegar að ég var að spila fótbolta. Ég hætti snarlega að spila fótbolta og náði mér í stóran stein og henti í hausinn á honum. Það þurfti að sauma átta spor í hausinn á honum. Það þótti ekki fyndið á þeim tíma en þetta þykir fyndið í dag.


Lesið þið Fótbolti.net?
Hugi:

Auddi: Já oft.
Slapp
banner