Andri Freyr Björnsson, vinstri bakvörður TB Tvøroyri, hefur verið valinn í lið umferða 1-9 í færeysku úrvalsdeildinni.
Blaðið Vikuskifti sá um valið en um er að ræða bestu leikmenn í fyrsta hluta deildarinnar af þremur.
Blaðið Vikuskifti sá um valið en um er að ræða bestu leikmenn í fyrsta hluta deildarinnar af þremur.
Andri Freyr spilaði áður með Selfossi og KFR en hann gekk til liðs við TB í vetur.
Reynir Magnússon leikur einnig með TB en þjálfari liðsins er Páll Guðlaugsson.
TB er í fimmta sæti í færeysku úrvalsdeildinni með ellefu stig eftir níu umferðir.
Athugasemdir