Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mán 20. september 2004 22:35
Hafliði Breiðfjörð
FH Íslandsmeistari 2004 í máli og myndum
Mynd: Hafliði Breiðfjörð
FH varð í gærkvöld Íslandsmeistari í efstu deild karla eftir lokaumferðina í deildinni. FH vann lokaleikinn gegn KA á Akureyri 2-1 fyrir framan mörg hundruð Hafnfirðinga sem lögðu á sig langa leið norður á Akureyri til að sjá sitt lið spila þennan mikilvæga leik. Stuðningsmennirnir stóðu sig frábærlega í stúkunni og sungu látlaust frá 15:30 til 18:30. Fótbolti.net var með tvo ljósmyndara á staðnum sem mynduðu allt sem þar fór fram auk þess sem þriðji ljósmyndarinn var tilbúinn í Hafnarfirði þegar FH-liðið mætti í bæinn og tók þátt í hátíðarahöldum í Kaplakrika. Allar myndirnar má sjá hér að neðan, um 200 talsins.

Eftir leikinn spjallaði fréttaritari okkar við Heimi Guðjónsson fyrirliða FH sem hafði þetta að segja: ,,Þetta er stórkostleg tilfinning, það er frábært að fá að taka þátt í þessu. Hópurinn er alveg frábær og það sem við lögðum upp með var að spila sóknarknattspyrnu og það var mikil liðsheild á bakvið þetta."

,,Í þessum leik komum við hingað og spiluðum sóknarknattspyrnu, fengum urmul færa og unnum sanngjarnan sigur. Þetta er frábær liðsheild og frábær klúbbur."

,,Þjálfararnir og allir hafa staðið vel við bakið á okkur og svo þessir frábæru áhorfendur, það er ekki hægt að klúðra þessu svona. Áhorfendurnir hafa verið frábærir í allt sumar og þeir eiga þetta innilega skilið."
Sagði Heimir að lokum.

Að lokum heyrðum við í Loga Ólafssyni landsliðsþjálfara og spurðum hvenær stuðningsmönnum FH yrði að ósk sinni og Daði Lárusson kæmist í landsliðið. ,,Það er ekki hægt að tímasetja en það getur orðið." sagði Logi.


Slapp
banner