Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 22. maí 2015 10:15
Hafliði Breiðfjörð
Heimild: Vísir.is 
Pape hættur hjá Víkingi
Pape er hættur hjá Víkingi.
Pape er hættur hjá Víkingi.
Mynd: Ívar Atli Sigurjónsson
Vísir.is greinir frá því í dag að Pape Mamadou Faye framherji Víkings sé hættur hjá félaginu.

Hann ku hafa tilkynnt leikmönnum ákvörðun sína á æfingu liðsins í gær en ekkert kemur fram um hver ástæða þessa er eða hvert framhaldið verður hjá honum.

Altént er félagaskiptaglugginn lokaður svo hann getur ekki skipt um félag fyrr en 15. júlí næstkomandi.

Pape hafði komið við sögu í öllum fjórum leikjum Víkings í sumar og skorað í þeim eitt mark. Hann var varamaður í 2-2 jafnteflinu gegn Stjörnunni á miðvikudagskvöldið.
Athugasemdir
banner
banner
banner