Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 22. maí 2015 20:45
Stefán Haukur
Welbeck gæti misst af úrslitum FA Cup
Mynd: Getty Images
Danny Welbeck, framherji Arsenal, gæti misst af úrslitum FA bikarsins á laugardaginn í næstu viku vegna meiðsla á hné samkvæmt Arsene Wenger.

„Við þurfum að einbeita okkur að næsta leik'' sagði Wenger en Arsenal mætir West Brom í síðasta leik þeirra á tímabilinu á sunnudaginn og mun Welbeck líklegast ekki koma við sögu í þeim leik.

„Ég mun hvíla einn til tvo leikmenn á sunnudaginn en það mikilvægasta er að við vinnum þennan leik,'' bætti hann við.

Arsenal þarf aðeins eitt stig til að tryggja sér þriðja sætið í deildinni og þar með fara sjálfkrafa beint í riðlakeppni Meistaradeildarinnar.
Athugasemdir
banner