Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 22. maí 2015 21:15
Stefán Haukur
Llorente: Pogba getur orðið sá besti í heimi
Mynd: Getty Images
Fernando Llorente segist hafa fulla trú á að liðsfélagi sinn hjá Juventus Paul Pogba geti orðið sá besti í heiminum.

„Hann á framtíðina fyrir sér. Hann er leikmaður sem getur orðið hvað sem hann vill. Ég held að hann gæti klárlega orðið besti leikmaður heims." sagði Llorente

Juventus mætir Barcelona í úrslitum Meistaradeildarinnar 6.júní. Llorente viðurkenndi að
Barcelona væru sigurstranglegri en sagði þó að þetta yrði alls ekki auðveldur leikur fyrir þá.

„Við vitum að þetta verður virkilega erfiður leikur því Barcelona er besta lið í heiminum akkúrat núna. Þeir eru í öðrum klassa."

„En maður veit aldrei í fótbolta. Við þurfum að eiga fullkominn leik," bætti hann við.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner