sun 24. maí 2015 08:30
Stefán Haukur
Van Gaal: Rooney er frábær fyrirliði
Manchester United mætir Hull í dag.
Manchester United mætir Hull í dag.
Mynd: EPA
Louis van Gaal, þjálfari Manchester United, hrósaði Wayne Rooney duglega á blaðamannafundi fyrir leikinn gegn Hull.

Rooney var tilkynntur sem fyrirliði í byrjun tímabils eftir að Louis van Gaal tók við.

„Hann er frábær fyrirliði og ég er mjög stoltur. Ég hef ekki enn orðið fyrir vonbrigðum," sagði Van Gaal

„Hann er frábær inni í klefa. Hann er alltaf til fyrirmyndar á æfingum og hann berst alltaf allan leikinn."

„Mér líkar fjölhæfir leikmenn og Manchester United þarf fleiri leikmenn eins og hann."

„Ég held að Wayne hafi verið rétti kosturinn því við höfum barist til enda í öllum okkar leikjum. Liðsandinn er frábær."
Athugasemdir
banner
banner