West Ham hefur staðfest að félagið ætli ekki að gera nýjan samning við knattspyrnustjórann Sam Allardyce.
Brottför Allardyce hefur legið i loftinu og West Ham staðfesti hana um leið og flautað var af í leik liðsins gegn Newcastle í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar í dag.
Brottför Allardyce hefur legið i loftinu og West Ham staðfesti hana um leið og flautað var af í leik liðsins gegn Newcastle í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar í dag.
Í yfirlýsingu frá West Ham segir að félagið sé nú þegar farið að leita að nýjujm knattspyrnustjóra.
Stóri Sam hefur stýrt West Ham undanfarin fjögur tímabil en hann hefur ekki verið vinsæll hjá stuðningsmönum félagsins.
Sam náði að halda út lengur í starfi en búist var við en hann var mjög nálægt því að fá að taka pokann sinn í fyrra.
Athugasemdir