Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 24. maí 2015 22:30
Elvar Geir Magnússon
Joe Hart ánægður með Lampard og gullhanskann
Joe Hart hélt oftast hreinu.
Joe Hart hélt oftast hreinu.
Mynd: Getty Images
Joe Hart, markvörður Manchester City, fékk gullhanskann fyrir þetta tímabil. Sá sem heldur marki sínu oftast hreinu hlýtur þessi verðlaun.

City vann 2-0 sigur gegn Southampton í lokaumferðinni í dag og endaði í öðru sæti.

„Ég er strax orðinn spenntur fyrir næsta tímabili, við erum sólgnir í að vinna allt sem við keppum í. Ég er stoltur af gullhanskanum en það er sanngjarnt að segja að Fraser Forster hjá Southampton hefði unnið þessi verðlaun ef hann hefði ekki lent í meiðslum. Þetta er persónuleg viðurkenning á tímabili sem olli vonbrigðum," segir Hart.

Frank Lampard kvaddi ensku úrvalsdeildina í dag en hann er á leið til Bandaríkjanna að spila fyrir New York í MLS-deildinni.

„Það var mikilvægt að kveðja með sigri. Frank Lampard er ótrúlegur karakter. Það er mikill missir fyrir úrvalsdeildina að hann sé farinn," segir Hart en Lampard skoraði fyrra mark City í dag.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner