Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 24. maí 2015 16:50
Arnar Geir Halldórsson
Rooney: Þurfum nokkra nýja leikmenn og við berjumst um titla
Wayne Rooney þakkar Steve Bruce fyrir leikinn
Wayne Rooney þakkar Steve Bruce fyrir leikinn
Mynd: Getty Images
Wayne Rooney, fyrirliði Man Utd, var vonsvikinn með frammistöðu liðsins í markalausu jafntefli gegn Hull í dag.

„Við vildum vinna leikinn. Við vildum enda tímabilið á þrem stigum en við spiluðum ekki nógu vel. Við vildum ekki að fólk héldi að við værum ekki að reyna því þetta var stór dagur fyrir Hull og Newcastle".

Victor Valdes lék sinn fyrsta byrjunarliðsleik fyrir Man Utd og átti fínan leik. Rooney hrósaði honum sérstaklega.

„Victor Valdes var frábær. Hann átti nokkrar góðar vörslur og hélt okkur inn í leiknum. Það er ekki tilviljun að hann hafi unnið alla þessa titla", sagði Rooney.

Man Utd endar tímabilið í 4.sæti. Rooney kveðst ánægður með tímabilið og segir lítið vanta upp á til að liðið geti farið að berjast aftur um titla.

„Við vissum að ef við næðum Meistaradeildarsæti á þessu tímabili gætum við unnið út frá því. Með nokkrum nýjum leikmönnum getum við farið að berjast um titla".

Athugasemdir
banner
banner
banner