Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 24. maí 2015 21:43
Magnús Már Einarsson
Man Utd staðfestir að Falcao er á förum
Hvað verður um Falcao í sumar?
Hvað verður um Falcao í sumar?
Mynd: Getty Images
Manchester United hefur staðfest að félagið ætli ekki að nýta sér réttinn á að kaupa Radamel Falcao frá Monaco í sumar.

Hinn 29 ára gamli Falcao var í láni hjá Manchseter United á nýliðnu tímabili.

Falcao náði aldrei flugi hjá United en hann skoraði einungis fjögur mörk í 29 leikjum.

„Falcao er topp atvinnumaður og góð manneskja," sagði Louis van Gaal stjóri Manchester United.

„Ég vil fyrir hönd allra hjá félaginu óska honum velfarnaðar í framtíðinni."
Athugasemdir
banner