„Þetta var mjög vond frammistaða hjá okkur, alveg frá upphafi leiksins," sagði Kristján Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur, eftir tap gegn Fylki. Keflavík er aðeins með eitt stig.
Lestu um leikinn: Keflavík 1 - 3 Fylkir
„Við gerðum mörg glórulaus mistök."
Hvernig metur Kristján sína stöðu eftir þessa slæmu byrjun?
„Þetta er ekki í lagi, að Keflavíkurliðið spili svona á heimavelli. Ég veit ekkert um mína stöðu nema stjórnir knattspyrnudeilda taka alltaf ákvarðanir sem þær telja bestar fyrir liðið."
„Þetta er þveröfugt við byrjunina í fyrra en himinn og jörð hafa ekki farist. Við þurfum að sýna að við erum Keflavík."
Kristján var spurður út í frammistöðu erlendu leikmennina í upphafi tímabils.
„Hún er ekki nógu góð. Það verður skoðað eins og allt annað hjá okkur," sagði Kristján.
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir