„Það eru allir farnir að taka þátt. Þegar stúkurnar kallast á milli... þetta er bara gæsahúð. Rækjan er ennþá hinumegin en hún er hætt að borða rækjusamlokur og farin að styðja liðið, sagði Tómas Þór Þórðarson, annar umsjónarmanna útvarpsþáttarins Fótbolti.net á X-inu FM 97,7 í gær.
Í upphafi þáttar var rætt um stemninguna og andrúmsloftið sem var á Laugardalsvelli á föstudag þegar Ísland vann toppslaginn gegn Tékkum.
Einnig var rætt um nálægðina í kringum landsliðið og hversu tengdur Heimir Hallgrímsson er við Tólfuna.
„Heimir Hallgríms er eiginlega guðfaðir Tólfunnar og hefur verið ótrúlega tengdur henni frá því að hann tók fyrst við, þá sem aðstoðarþjálfari. Eftir leikinn gegn Tékkum mætti hann á Ölver og hélt smá tölu yfir mannskapnum og þakkaði fyrir stuðninginn," sagði Elvar Geir Magnússon en hægt er að hlusta á umræðuna í spilaranum hér að ofan.
Sjá einnig:
Smelltu hér til að hlusta á útvarpsþáttinn í heild sinni
Athugasemdir