Isak, Tuchel, Sesko, Amorim, Rabiot, Branthwaite og fleiri góðir í slúðrinu í dag
   mið 17. júní 2015 15:13
Hafliði Breiðfjörð
Daniel Ivanovski kveður Fjölni
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Varnarmaðurinn Daniel Ivanonvski hefur leikið sinn síðasta leik með Fjölni en þetta staðfesti Ágúst Gylfason þjálfari liðsins í samtali við Fótbolta.net.

Daniel er frá Makedóníu en hann hefur verið öflugur í vörn Fjölnis í sumar.

Vegna fjölskylduaðstæðna hefur Daniel beðið um að vera leystur frá samningi og Fjölnir varð við þeirri ósk.

„Hann fer til síns heima á morgun," sagði Ágúst.

,Það er mikill missir af þessum frábæra leikmanni. Hann gaf okkur mikið innan sem utan vallar."

Daniel kom til Fjölnis fyrir tímabil eftir að hafa leikið með Mjallby í sænsku úrvalsdeildinni.
Athugasemdir
banner
banner