Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 18. júní 2015 16:15
Magnús Már Einarsson
Arnór Smára hafnar tilboðum frá fjarlægari löndum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Arnór Smárason er á leið aftur til Helsingborg eftir að lánssamningur hans hjá Torpedo Moskvu rann út.

Arnór spilaði í rússnesku úrvalsdeildinni síðari hluta tímabils en náði ekki að hjálpa Torpedo að bjarga sér frá falli.

Arnór sýndi þó fína takta með Torpedo og í kjölfarið hefur hann fengið tilboð frá fjarlægari löndum samkvæmt heimildum Fótbolta.net.

Hann hefur hins vegar ákveðið að hafna þeim tilboðum.

Arnór mun því hefja æfingar að nýju með Helsingborg á næstunni en framhaldið er óljóst hjá honum.
Athugasemdir
banner
banner
banner