Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 30. júní 2015 09:00
Daníel Freyr Jónsson
Watford að kaupa Matej Vydra
Matej Vydra.
Matej Vydra.
Mynd: Getty Images
Watford mun kaupa framherjann Matej Vydra frá Udinese í sumar eftir árangursríka lánsdvöl hjá fyrrnefnda liðinu.

Hinn tékkneski Vydra er 23 ára gamall og skoraði hann 16 mörk í 42 leikjum í Championship-deildinni í vetur. Hjálpaði hann liðinu í að vinna sér sæti í ensku úrvalsdeildinni.

Vydra lék einnig með Watford leiktíðina 2012-13 og skoraði þá 20 mörk. Hann lék síðan eina leiktíð með WBA í ensku úrvalsdeildinni en mistókst að slá í gegn þar.

Bæði Udinese og Watford eru í eigu Pozzo fjölskyldunnar, sem einnig á spænska félagið Granada.
Athugasemdir
banner
banner
banner