Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 02. júlí 2015 08:00
Arnar Geir Halldórsson
Heimild: Lyon 
Claudio Beauvue til Lyon (Staðfest)
Nýjasti liðsmaður Lyon
Nýjasti liðsmaður Lyon
Mynd: Getty Images
Framherjinn Claudio Beauvue er genginn til liðs við Olympique Lyon en hann kemur til félagsins frá Guingamp.

Beauvue vakti athygli fyrir vasklega framgönu með Guingamp í Ligue 1 á síðustu leiktíð en hann skoraði 27 mörk í öllum keppnum og varð meðal annars fimmti markahæsti leikmaður deildarinnar.

Hann var orðaður við Tottenham og West Ham fyrr í sumar en þessi 27 ára leikmaður var að spila í frönsku B-deildinni fyrir tveim árum síðan.

Beauvue gerir fjögurra ára samning við Lyon sem lenti í 2.sæti Ligue 1 á síðustu leiktíð og mun því leika í Meistaradeild Evrópu.

Þetta eru önnur kaup Lyon í sumar en áður hafði liðið fjárfest í Jeremy Morel sem kom frá erkifjendunum í Marseille.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner