Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 02. júlí 2015 23:00
Ívan Guðjón Baldursson
Myndband: Guidetti stýrði fögnuði þúsunda Svía
Mynd: mirror/google
Svíþjóð vann Evrópumót U21 árs landsliða í júní eftir sigur gegn Portúgal í úrslitaleiknum.

John Guidetti, fyrrverandi sóknarmaður Manchester City og núverandi leikmaður Celtic í Skotlandi, er ein af skærustu stjörnum liðsins og er þekktur fyrir að hafa mikið keppnisskap og sýna mikla ástríðu.

Við heimkomu mættu þúsundir Svía til að fagna með landsliðinu og tók Guidetti það á sig að stýra hluta fagnaðarins.

Í myndbandinu sem má sjá hér fyrir neðan fær Guidetti stuðningsmennina til að hrópa hástöfum með sér og augljóst að Svíar eru mjög stoltir af þessu magnaða afreki, enda gífurlega sterk landslið sem kepptu við Svía á mótinu.


Athugasemdir
banner
banner
banner