Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 04. júlí 2015 13:00
Eyþór Ernir Oddsson
Heimild: SkySports 
J. Redknapp: Falcao verður bekkjaður hjá Chelsea
Mynd: Getty Images
Jamie Redknapp, sparkspekingur hjá Sky, telur að Radamel Falcao verði mikið bekkjaður hjá Chelsea á næsta keppnistímabili.

Falcao var í dag lánaður frá Monaco til Chelsea eftir skelfilegt tímabil hans í herbúðum Manchester United.

„Hann verður mikið á bekknum á næsta ári. Ég hef horft á hann á Atletico Madrid dögum hans og hann var einn besti framherji sem ég hef séð."

„Núna fer hann til Chelsea og það sem Chelsea þarf er framherji sem er sáttur við að spila ekki og þurfa stundum að fylla inn í þegar það eru meiðsli, því þegar þú lítur á leikmennina þá er hann að fara að keppa um stöðu við Diego Costa, sem verður áfram númer eitt."

„Ég held að hver einasti Chelsea stuðningsmaður viti þetta en svo hafa þeir einnig Loic Remy. Svo að það sem Falcao er að segja er að hann sé ánægður með að koma til Chelsea og vera hluti af hópnum. Mér finnst það pínu svekkjandi því mér finnst hann betri leikmaður en það."

Athugasemdir
banner
banner
banner