„Þetta er búið að fara hrikalega vel af stað og við erum að njóta okkar í augnablikinu, það er bara þannig," sagði Hallur Hallsson, fyrirliði Þróttar í viðtali við útvarpsþáttinn fótbolti.net í dag.
Þróttarar eru í mjög góðri stöðu en þeir eru með 24 stig af 27 mögulegum eftir fyrstu níu umferðirnar. Einu stigin sem þeir hafa tapað var gegn Fram á Laugardalsvellinum.
„Það er samspil margra þátta sem gerir það að verkum að þetta gengur svona vel, við erum með gríðarlega skemmtilegan hóp af strákum í þessu liði, erum með breiðan hóp, menn eru að detta út en það kemur alltaf maður í manns stað"
„Gregg þjálfari er bara virkilega flottur í því sem hann er að gera, hann veit upp á hár hvað hann vill fá frá hverjum og einum og þar af leiðandi liðinu og undirbýr okkur þannig. Þannig að menn sem koma inn til dæmis af bekknum, maður kemur inn í liðið og er með allt sitt á hreinu"
Nánar er rætt við Hall í útvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir