lau 04. júlí 2015 17:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Heimild: BBC 
Troy Deeney framlengir hjá Watford
Troy Deeney fagnar hér marki fyrir Watford
Troy Deeney fagnar hér marki fyrir Watford
Mynd: Getty Images
Framherjinn Troy Deeney hefur skrifað undir nýjan fimm ára samning við Watford.

Hinn 27 ára gamli Deeney, skoraði 21 mark í 42 leikjum fyrir Watford á síðasta tímaibili og hjápaði þeim að tryggja sæti sitt í ensku úrvalsdeildinni.

Lið eins og Swansea og West Brom voru sögð hafa áhuga á framherjanum, en nú er það ljóst að hann verður áfram hjá Watford.

Þetta eru ekki einu góðu fréttir dagsins fyrir stuðningsmenn Watford, því sóknarmaðurinn Matej Vydra er búinn að skrifa undir hjá félaginu, eftir að hafa verið þar í láni síðasta tímabili.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner